_                _          __  __  _
(_)_ __ ___   ___| |_ _   _ / _|/ _|(_)___
| | '__/ __| / __| __| | | | |_| |_ | / __|
| | | | (__ _\__ \ |_| |_| |  _|  _|| \__
|_|_|  \___(_)___/\__|\__,_|_| |_|(_)_|___/
Heim | Hjálp | Reglur | Staða | Skrár | Vefspjall | Þjónusta |

HostServ - Hýslaþjónusta
Til baka
HostServ er þjónustu sem gerir þér kleyft að vera með hvaða hýsil (e. host) sem er. Þetta heitir að vera með svokallðan gervi hýsill (e. vhost).
Þegar aðrir gera á þig /whois þá sjá þeir ekki venjulega hýsilinn þinn eins og jon@irc.stuff.is-F125BCG9.simnet.is heldur gervi hýsil sem þú hefur skilgreint sjálfur, t.d. jon@jon.is.

Til að fá gervi hýsil verður þú fyrst að eiga skráð gælunafn. Þú skráir gælunafn með NickServ. Síðan þarft þú að hafa samband við stjórnanda IRC þjónsins og biðja um að fá úthlutað gervi hýsil að eigin vali.
Hafa ber í huga að það kostar smá að fá úthlutað gervi hýsil (e. vhost), sjá yfirlit yfir þjónustur.

/msg hostserv on
Með þessari skipun setur þú í gang gervi hýsilinn sem er stilltur fyrir gælunafnið þitt. Þetta þarf þú bara einu sinni því næst þegar þú tengist er gervi hýsilinn þinn settur í gang sjálfvirkt.

/msg hostserv off
Með þessari skipun tekur þú úr sambandi gervi hýsilinn sem er stilltur fyrir gælunafnið þitt.

Nánari upplýsingar um HostServ er hægt að kalla fram með því að gefa skipunina
/msg hostserv help.


Til baka

irc.stuff.is
Slóðin er irc.stuff.is
Opin port eru 6660-6670
og SSL port 6697

Vefspjall á eigin síðu
Þú getur haft rauntíma vefspjall á eigin heimasíðu.
Ýttu hérna og fylgdu leiðbeiningunum.