_                _          __  __  _
(_)_ __ ___   ___| |_ _   _ / _|/ _|(_)___
| | '__/ __| / __| __| | | | |_| |_ | / __|
| | | | (__ _\__ \ |_| |_| |  _|  _|| \__
|_|_|  \___(_)___/\__|\__,_|_| |_|(_)_|___/
Heim | Hjálp | Reglur | Staða | Skrár | Vefspjall | Þjónusta |

NickServ - Gælunafnaþjónusta
Til baka
NickServ er þjónusta sem gerir þér m.a. kleyft að eiga gælunöfn.

/msg nickserv register lykilorðið emailið
Með þessari skipun eignar þú þér gælunafnið sem þú ert tengdur undir. Þú verður setja inn a.m.k 5 stafa langt lykilorð og þú ættir að láta tölvupóstfangið þitt fylgja með. Þú þarft ekki að láta tölvupóstfangið fylgja með skráningunni en við mælum með því upp á ef þú gleymir lykilorðinu þínu, þá getur þú fengið það sent.
Lykilorð mega ekki innihalda bil
Við sendum engan póst til þín og gefum engum upp tölvupóstfangalistann, þeir tölvupóstar sem þú hugsanlega færð eru sendir út sjálfkrafa af kerfinu okkar, t.d. ef þú biður um að fá lykilorðið þitt sent.
Athugaðu að ef þú notar ekki gælunafnið þitt í 3 vikur eyðist það sjálfkrafa og aðrir geta farið að nota það.

/msg nickserv identify lykilorðið
Þessa skipun gefur þú í hvert sinn sem þú tengist IRC þjóninum. Þetta verður þú alltaf að gera ef þú ætlar að nota gælunafn sem þú hefur eignar þér. Í sumum IRC biðlurum getur þú stillt að þessi skipun sé gerð sjálfkrafa þegar þú tengist.

/msg nickserv set password nýttlykilorð
Með þessari skipun getur þú breytt lykilorðinu þínu. Þú verður að hafa fyrst gert indentify skipunina.

/msg nickserv set kill on
Þú getur varið gælunafnið þitt með að gefa þessa skipun einu sinni. Eftir það hefur þú eða aðrir sem nota gælunafnið þitt eina mínútu til þess að sanna að viðkomandi eigi gælunafnið með skipuninni /msg nickserv identify lykilorðið (sjá fyrir ofan) annars eftir eina mínútu breytir þjóninn gælunafninu hjá viðkomandi.

/msg nickserv recover gælunafn lykilorðið
Ef þú kemur inn og einhver er að nota gælinafnið þitt getur þú látið þjóninn breyta nafninu hjá aðilanum í annað með þessari skipun. Ef þú ert oft að gera þetta er mælt með að þú notir skipunina /msg nickserv set kill on (sjá fyrir ofan)


Til baka

irc.stuff.is
Slóðin er irc.stuff.is
Opin port eru 6660-6670
og SSL port 6697

Vefspjall á eigin síðu
Þú getur haft rauntíma vefspjall á eigin heimasíðu.
Ýttu hérna og fylgdu leiðbeiningunum.